Monday, May 09, 2005

allt þreytt...

allavega kominn tilbaka frá la. er alveg hrikalega þreyttur og búinn að sjokkera skrokkinn á mér svakalega. þarf væntanlega nokkra daga til að jafna mig. endaði með því að verða þriðji í keppninni og skora 7002 stig. þar sem að allt þetta vor hefur verið mjög mjög brösótt fyrir mig þá verður mar bara að taka hvaða skori sem mar nær fagnandi og halda áfram. þetta er pottþétt erfiðasta þrautin sem ég hef farið í gegnum bæði líkamlega og andlega. er að pæla í að fara á persónlulegu nóturnar og skrifa soldið um þetta. (aðallega fyrir sjálfan mig þegar ég lít á þetta eftir nokkur ár.)

laugardagur.
-100m-11.85s-hrikalega hrikalega hægt. var mjög hræddur við að komast ekki í gegnum þessa grein. átti ömurlegt start og náði aldrei að hlaupa almennilega. kláraði samt og lærið á mér hélt. er búinn að fara einu sinni úr blokk síðan í janúar og það var á fimmtudaginn síðasta. hef ekki tekið eina hraðaæfingu síðan þá heldur. þannig að ég vissi alvega að við þessu væri búist. andlega séð var þrautin samt hálfnuð eftir þetta hlaup.
-langstökk-6.73m-allt í lagi svo sem. byrjaði samt á því að setja sjálfan mig í vonda stöðu með því að stökka bara 6.10m í fyrstu tilraun. eitthvað sem ég hef ekki gert síðan ég var svona 14 ára. gerði svo næsta ógilt. var svo þreyttur eftir 100m hlaupið að ég átti erfitt með að hlaupa atrennuna mína. en náði samt að setja smá kraft í það síðasta og stökk 6.73m. þokkalega sáttur en samt orðinn þreyttur í löppunum. hef ekki stokkið langstökk með fullri atrennu síðan í janúar. samt búinn að hlaupa atrennu tvisvar. annað skiptið var samt bara á 80%.
-kúla-13.53m-bætti mig á fyrsa kasti. náði loksins að gefa mér tíma til að hreyfa kúluna og ýta aðeins á hana. var samt ekkert rosalegt átak á henni. næstu köst var ég of æstur og það varð ekki neitt úr neinu. góð bæting samt og þetta kveikti aðeins í mér.
hástökk-1.92m-ágætis hástökk svo sem. var samt nálgt því að fara yfir 95 en það small samt ekki. er alltaf í vandræðum með að hlaupa beygjuna almennilega. er samt að vera betri. var eiginlega alveg bensínlaus samt eftir hástökkið.
-400m-52.65-eins og 100m-bara hrikalega hægt-var bensínlaus og hræddur við hlaupið. fór hrikalega hægt af stað og ætlaði aldrei að ná í taktinn til að hlaupa þetta. hljóp´
örugglega negatíft splitt í þessu hlaupi. ekki búinn að taka neina 400m æfingu síðan í janúar. fyrsta sem ég hugsaði eftir þetta hlaup "geri þetta aldrei aftur ekki í formi"!!algerlega bensínlaus og stífur, þreyttur, dasaður og bara búinn á því. samt feginn að hafa komist í gegnum helming og nokkurn veginn heill.
-fékk nudd eftir hlaupið frá fyrrverandi nuddara tom pappas og fór svo í ísbað. borðaði eins og göltur um kvöldið og svo bara étið motrin og horft á blak um kvödið í sjónvarpinu.

sunnudagur.
vaknaði vel stífur í lærinu og bakinu öllu saman. samt betri heldur en ég hafði búist við. þannig að ég fór snemma á völlinn og lét sjúkraþjálfarann vinna á löppunum á mér í svona 40mín áður en ég byrjaði að hita upp. var þokkalega vel stemmdur.
-110m grind-15.59s-frekar hægt-en ég held að ég hafi bætt mig. grind 4,5,6 slappar en náði að klára þokkalega í gegn. eins og með 100m þá var þetta stærsti höuðverkurinn á seinni degi. hef tekið total 4 æfinar yfir grind. fyrsta var með grindina alla leiðina niður. og svo í hvert skipti upp eitt bil. hafði farið einu sinni úr blokk yfir grind og það var bara 80%. var samt soldið stífur eftir hlaupið og farinn að hafa smá áhyggjur af framhaldinu. andlega séð þá var ég samt búinn með 80% af þrautinni.
-kringla-38.xxm-ekkert sérstakt, eins og í langstökkinu þá setti ég mig í vonda stöðu með að eiga lélegt fyrsta kast og gera svo næsta ógilt. náði samt allt í lagi kasti í þriðja. tæknilega séð allt í lagi. vantar bara nokkur þúsund köst í viðbót ;)
-stöng-3.85m-hérna var það sem ég fór niður fyrir "E". algerlega bensínlaus. var bara feginn að hafa komist í gegnum þetta án þess að detta ekki á hausinn einhvers staðar. átt ekkert erindi í allar stangirnar mínar og stökk í fyrsta skipti í 3 ár á 15 feta stöng. hafði ekki möguleika á að komast á 16 feta stöng. stífnaði soldið upp og þetta var tímapunkturinn sem æfingaleysið kom og flengdi mig. ég átti það svo sem alveg skilið held ég. hef stokkið þrisvar síðan í janúar og í tvö skipti kom þetta sama vandamál upp.
-spjót-61.xxm- allt í lagi, en eins og áður þá var fyrsta kast lélegt en eftir alla hvíldina meðan hinir strákarnir voru að stökkva stöngina þá náði ég að taka soldið á því í síðasta og koma því yfir 200 fetin. þetta er örugglega bjartasti punkturinn á allri þrautinni. var á þessum tímapunkti 6 stigum á eftir stráknum á undan mér. þannig að það var pepp-talk frá coach fyrir 1500m og lagt á ráðin um þetta.
-1500m-4:38,xx-náði að vinna hinn strákinn með 6 sek og þar með ná þriðja sætinu. þvílkt team work hjá hinum stráknum og félaga hans. átti eitthvað að reyna að sprengja víkinginn en ég hélt nú ekki...mar er ekki fæddur með stór lungu fyrir ekk neitt...búinn að æfa þessa grein soldið vegna þess að það hefur ekki reynt mikið á mig á æfingum og okkur langaði til að eiga svona hlaup uppi í erminni. ljúft...en sárt að ná að klára þetta svona.
-ísbað og komið sér að éta strax eftir allt saman

þannig að þó að þetta hafi ekki verið nein dúndur helgi fyrir mig þá eru þarna nokkrir ljósir punktar. fer allavega aftur til la til að kasta spjóti um næstu helgi.

6 Comments:

At 2:12 AM, Anonymous Anonymous said...

Glæsilegt!

 
At 3:04 AM, Anonymous Anonymous said...

Góður að klára vel undir lokin!

 
At 5:23 AM, Anonymous Anonymous said...

Hæ Jónas
Til hamingju með þrautina,ég sé að þetta hefur tekið mikið á andlega og líkamlega.
Það er fyrir mestu að þú ert heill og náðir að klára, með áfram haldandi æfingum má bæta mörgum stigum við. Engin spurning að spjótið og 1500m stóðu upp úr og verð ég að segja að ég er mjög ánægð með 1500m, þú ert nú engin tannstöngull þessa dagana.
Taktu það róglega næstu daga og gangi þér vel næstu helgi.
Kveðja H+E

 
At 7:44 AM, Anonymous Anonymous said...

blessaður..

Til hamingju með þetta kall, heldur betur glæsilegt þótt ég þykist nú vita að það sé nóg inni fyrir sumarið :D
kv. Bjoggi
ps. fer alveg að senda myndirnar bráðum :D

 
At 12:35 PM, Anonymous Anonymous said...

Góður!!

 
At 5:24 AM, Blogger Hafdís Ósk said...

Þú ert NAGLI!
Glæsilegt hjá þér!

Gott að taka víkingastílinn á þetta í lokin ;)

Hlakka til að sjá þig á brautinni í sumar!

 

Post a Comment

<< Home